Um Hátíð Hafsins

Hátíð hafsins er nú haldin í tólfta skipti. Í fyrra var hún flutt í fyrsta skipti vestur á Granda og heppnaðist sú breyting afar vel. Má telja víst að hátíðin festi sig í sessi þar, enda er hún þar í nálægð við höfnina og helstu fyrirtæki sem sinna útgerð og sjómennsku.

Hátíðin fjallar um allt sem viðkemur hafinu, menningu tengda sjómennsku, skip, fisk, hafmeyjar og síðast en ekki síst, sjómannalög. Hátíð hafsins hefur undanfarin ár staðið fyrir sjómannalagakeppni í samstarfi við Rás 2. Þar hafa orðið til mörg ný og skemmtileg sjómannalög.

Að Hátíð hafsins standa Faxaflóahafnir og Sjómannadagsráð Reykjavíkur, en verkefnisstjórn er á höndum Höfuðborgarstofu.

Verkefnisstjórar eru Skúli Gautason skuli.gautason@reykjavik.is og Guðríður Inga Ingólfsdóttir gurry@visitreykjavik.is