Gómsætur fiskur

Fiskur hátíðarinnar er karfi

Fiskur Hátíðar hafsins árið 2009 var steinbítur og í ár er það karfi. Þeim sem standa að Hátíð hafsins, Sjómannadagsráði og Faxaflóahöfnum sf., finnst mikilvægt að lögð sé rækt við að kynna íslenskan matfisk fyrir þjóðinni með átaki á meðan á Hátíðinni stendur. Allmörg veitingahús í miðborg Reykjavikur eru með sérstakan matseðil sem einkanlega er tileinkaður fiski og nú trónir karfinn vonandi á toppnum hjá sem flestum matsölustöðum.
Á árlegri sýningu Hafrannsóknarstofnunar á Hátíð hafsins mun karfinn að þessu sinni verða í heiðurssæti og nokkur afbrigði verða sýnd. Það er hollt að borða karfa en samkvæmt upplýsingum úr uppsláttarbókum eru 114 kaloríur í hverjum 100grömmum af karfa, 18,5 gr. Eggjahvíta3,8 gr. Fita og 99pg. Joð. Þegar hollusta karfa er borin saman við þorsk verður útkoman svipuð.

Karfinn hefur verið nytjafiskur við strendur landsins til margra ára en fyrr á árum var þessi fiskur ekki mikið etinn af íslendingum en þykir mjög góður matfiskur í dag. Sumir halda því fram að Reykjavík sé „höfuðborg karfans“ en tiltölulega er mikið landað í Reykjavik af karfa og þaðan er hann fluttur út um allan heim.

Nokkrar tegundir eru til af karfa en HB Grandi gerir tveimur tegundum skil á vefsíðu sinni; djúpkarfa/úthafskarfa og gullkarfa. Djúpkarfi og úthafskarfi veiðast innan og utan landhelgi og finnst víða fyrir vestan, sunnan og austan land en úthafskarfinn er mest veiddur á Reykjaneshrygg, suðvestur af landinu.

Fiskur Hátíðar hafsins er karfi

Karfinn er ekki bara snoppufríður, hann er líka góður á grillið

Djúpkarfi og úthafskarfi veiðast innan og utan landhelgi. Djúpkarfinn finnst víða fyrir vestan, sunnan og austan land en úthafskarfinn er mest veiddur á Reykjaneshrygg, suðvestur af landinu. Gullkarfinn er veiddur allt árið um kring en oft veiðist mest síðla vetrar. Bestu miðin eru vestur og suðvestur af landinu.

Nokkur veitingahús bjóða upp á sérstakan matseðil í tilefni Hátíðar hafsins

Hornið

Ítölsk sjávarréttasúpa með basil.

-o-

Smjörsteiktur Karfi með rækjum og hörpuskel í hvítlauk.

-o-

Súkkulaðikaka með vanilluís.

Einar Ben

Sjávarréttasúpa með íslenskum skelfisk og anís-pernod hlaupi

Seafood soup with Icelandic shellfish and an anise-pernod gel

-o-

Rabbarbarakrapís með kampavíni

Rhubarb sorbet with champagne

-o-

Pönnusteiktur karfi með kremuðum jarðskokkum, kartöflusmælki og léttsýrðu blómkáli

Pan-fried ocean perch with creamed sunchokes, baby potatoes and lightly pickled cauliflower

-o-

Kanil creme brullé með eplakrapís

Cinnamon cremé brullé with apple sorbet

Silfur

Reykt bleikjutartar og túnfiskur með dillmayonnaise, sýrðum gúrkum og foie gras

-o-

Grillaður karfi með steiktu smælki og karrýsósu

-o-

Lakkrís súkkulaðikaka með  ferskjusorbet

Fiskfélagið

Fiskisúpa & bonitofroða, soðinn KRÆKLINGUR að vestan & hvítlaukskryddaður LETURHUMAR.

-o-

Steiktur KARFI í höfrum & djúpsteikt  HÖRPUSKEL, smælki kartöflukaka, lynghænuegg & fáfnisgras & humar kálfasoðgljái

-o-

Alvöru TIRAMISU frá Salento í suðri, stracciatellaís, kaffikarmellusósa, melóna & hunangsmelónufroða

Við Tjörnina

Óvissu smakk í boði okkar
surprise course from our chefs

-o-

Fiskisúpa Tjarnarinar

Fish soup with cream

-o-

Karfi með saltbakaðri rauðrófu, humarfroðu og söl

Pan fried Ocean pearch with salt baked beetroot, lobster foam and dulse

-o-

Súkkulaði kakan okkar

our famous chocolate cake

Fjalakötturinn

Ákavítis marinerað hreindýr með múltuberjamauki, eplum og kryddjurtum

Aquavit cured reindeer with cloudberry coulis, apple and herbs

Karfi með nýjum íslenskum paprikum, ertumauki og paprikusósu

Ocean perch with new Icelandic paprika, pea purée and paprika sauce

Apríkósukaka með heslihnetuís

Apricot cake with hazelnut ice cream